Jæja þá er helgin búin, ég var að vinna næturvakt alla helgina og er fegin að törninni er lokið í bili ég er oft alveg í viku að snúa sólarhringnum við, ekki það að mér finnist ekki gaman í vinnunni, ég er að vinna með dásamlegu fólki og þykir svo vænt um alla, heppin með vinnustað
ég var líka að hækka um þrjá launaflokka og fæ þessa hækkun núna um mánaðarmótin, hlakka svo til að sjá hvað ég fæ, ég fæ einnig tvo mánuði afturvirkt svo það er gleði hér á bæ vei

ég er búin að vera going down the memory lane

það er svo stutt síðan ég byrjaði í skólanum og nú fer ég að vera búin með BA, mér finnst þetta alveg ótrúlegt, ég hélt að háskóli væri ekkert fyrir mig, að ég væri ekki nógu klár en það virðist ekki vera svo

nú eru rúm tvö ár síðan ég hætti á leikskólanum og mikið er ég ánægð, hver vill vinna með svona fólki? ekki ég, margt af því er yndislegt en margt eru ógeðslegir drullusokkar og er mikið fegin að vera ekki að vinna á vinnustað þar sem maður gæti átt það í hættu að vera stungin í bakið, mikið um það þar, enda eftir að mamma hætti er leikskólinn búin að dala, hef heyrt margar sögur sem láta mig brosa.
Mig dreymir þær ennþá og hugsa því miður enn alltof mikið um þetta og mikil reiði, enda hefur lífið breyst mikið eftir þetta og hef ég aldrei kynnst jafn sorglegu fólki og því sem tók þátt í þessu, ég hugsa líka oft um fyrrum vinkonu mína, hver þarf óvini ef maður á hana fyrir vin!!!!! enda hefur hún stungið fleiri í bakið... ætli þetta sé ekki bara hennar karakter, sumt fólk er bara fætt illa innrætt og sumir þora ekki nema að fylgja hópnum, finnst það sorglegt, þetta kenndi mér allavega mikið um virðingu, koma vel fram við aðra, eitthvað sem þær kunna ekki! en jæja nenni ekki að púðrast um þær meira í bili.....
ég er búin að vera dugleg að skrifa sögur um þær, gott að fá útrás og sögurnar eru oft mjög fyndar, ég held að ég ætti að einbeita mér á að skrifa stelpu Harry Potter, nema að hún vinnur á galdraleikskóla, þar sem mikið er um snáka og hún þarf að verjast illu yfirmönnunum til að verja aðalkennarann, hum strax komin með hugmynd að næstu sögu, algjör snilld að blogga ha

jæja ætla að fara að gera eitthvað skemmtilegt, hafið það gott ég ætla að leika við litlu telpuna

Daníel fór til Kanarí með mömmu og pabba svo það er hljótt hér á bæ, ég er strax farin að sakna þeirra, ekki liðin vika, rosalega er maður háður börnunum sínum, svo er ég líka mikil mömmu og pabbastelpa, held að ég verði það alltaf
yfir og út
Hjöddan mömmu/pabbastelpa

og auðavitað Daníelstelpa híhí hvað var ég að reykja